Spurl er líklega best þekkt fyrir bókamerkjaþjónustuna Spurl.net, en auk þess þróum við og rekum leitartæknina sem meðal annars knýr leitarvélina Emblu á mbl.is, sem kosinn var besti vefur landsins árið 2005.

Spurl býður upp á ýmsar leitar- og gagnalausnir fyrir vefgáttir, fyrirtæki og einstaklinga.

Rekur þú efnisvef eða vefgátt?

Spurl getur útvegað leitarvél með öllu tilheyrandi: auglýsingakerfi, fullkomnum leitarmöguleikum, bókamerkjageymslu og áherslu á þá hluta vefsins sem þér hentar.
meira...

Er fyrirtækið þitt með vef?

Við getum útvegað hágæða leitarniðurstöður fyrir þinn vef, sem þú getur á einfaldan hátt samtvinnað við útlit og framsetningu vefsins þíns. Það þarf ekki að setja upp neinn hugbúnað, bara smá forritsstúf á þær síður þar sem niðurstöðurnar eiga að birtast.
meira...

Viltu geyma gögnin þín á Netinu?

Fáðu þér fría áskrift að Spurl.net. Þar geturðu geymt allt það áhugaverða efni sem þú finnur á Vefnum, deilt því með öðrum og leitað í safninu.
meira...